22.02.1949
Efri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (844)
8. mál, Landsbókasafn
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Það skulu verða fá orð, sem ég segi um þetta mál, en ég vil aðeins upplýsa það, að þegar við höfðum málið til meðferðar í menntmn., þá hnutum við einmitt um þetta atriði, að talað var um 6 bókaverði, en í gömlu lögunum frá 1907 er aðeins gert ráð fyrir 2 bókavörðum. Ég hygg, að fáir eða engir hafi haft löngun til að fjölga starfsliðinu við safnið, því að ástandið er ekki þannig, að það séu tímar til slíks, og þess vegna lét ég athuga, hversu margir starfsmenn væru við safnið, og svarið var, að þar störfuðu nú 6 menn auk landsbókavarðar, en af því má sjá, að hér er ekki um fjölgun að ræða. Hitt tel ég raunar aukaatriði, hvort þessir menn eru ráðnir sem bókaverðir eða skipaðir eftir lögunum.
Hitt í ræðu hæstv. dómsmrh., hvort ekki sé hægt að spara starfskrafta við umrædd bókasöfn með því að samræma betur störf þeirra, tel ég þörf á að athuga nánar, og er ég reiðubúinn til þess að taka málið aftur fyrir í menntmn. til að athuga þann möguleika. Í því tilfelli er um tvær leiðir að ræða. Sú er önnur að taka málið nú út af dagskrá, en hin er að láta málið ganga til 3. umr. og athuga þessa hlið málsins milli umræðna. Síðari leiðin er heldur fljótlegri, en ég vil sem forseti láta dm. ráða, hvora leiðina þeir kjósa.