09.05.1949
Efri deild: 101. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (875)

8. mál, Landsbókasafn

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég hef flutt brtt. við þetta frv., á þskj. 390. Tel ég sjálfsagt, að flestir þdm. mundu ljá henni atkv. sitt, en nú sé ég, að af samþykkt hennar hlyti að leiða það, að þetta mál yrði að fara aftur til Nd., og býst ég við, að afleiðingin yrði þá sú, að málið dagaði uppi. Ég mun þess vegna taka brtt. mína aftur til þess að fyrirbyggja slíkt og auðvelda afgreiðslu málsins.