16.03.1950
Sameinað þing: 35. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (100)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (ÞÞ):

Mér hefur borizt svolátandi bréf frá hæstv. forseta Ed.:

„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Páli Zóphóníassyni, 1. þm. N-M.:

„Með því að ákveðið er, að ég mæti á bændanámskeiðum í Skaftafells- og Múlasýslum næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að óska eftir því, að 2. varamaður minn, Sigurður Vilhjálmsson (1. varamaður, Þorsteinn Sigfússon, er forfallaður), taki sæti í minn stað á Alþingi, meðan ég verð fjarvistum.“

„Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér boðið sem skjótast til fundar í sameinuðu þingi til þess að rannsaka og bera upp til samþykktar kjörbréf varamanns.

Bernharð Stefánsson.

Forseti sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréfan. hefur athugað þetta mál, og tekur frsm. hennar til máls.