09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (1025)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

(Hermann Jónasson):

Herra forseti. Það væri æskilegt að geta samþ. þessa till. og hafa von um að geta staðið við þær skuldbindingar, sem hún hefur að geyma. En það eru æðimargar skuldbindingar, sem hvíla á ríkissjóði, sem fyrr falla í gjalddaga, og ég geri mér ekki vonir um, þó að till. verði samþ., að hægt sé að fullnægja þeim skuldbindingum, sem af henni leiðir, og segi ég því nei.