11.05.1950
Neðri deild: 99. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég er að mestu leyti fylgjandi þessu frv., en hef þó ákveðið að bera fram þá brtt., að í síðustu málsgr. 6. gr. bætist við á eftir orðunum „að nokkru“: eða öllu. — Þarna getur aldrei verið nema um örlitla fjárupphæð að ræða. Bæði fyrir hið opinbera og einstaklinga hygg ég að þetta verði hagkvæmara.

Ég vona svo, að hæstv. forseti sjái sér fært að leita afbrigða fyrir þessari brtt., svo að hún geti komið til umræðu.