02.05.1950
Sameinað þing: 42. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

38. mál, fjárlög 1950

Forseti (JPálm):

Ég hafði búizt við, að brtt. fjvn. yrðu tilbúnar nú á þessum fundi, svo að það mætti útbýta þeim, en svo gat ekki orðið. Þær verða þó líklega tilbúnar og útbýtt um hádegi á morgun, og vil ég vænta þess, að sem flestir hv. þm. skili brtt. sínum fyrir annað kvöld.