04.05.1950
Sameinað þing: 44. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)
38. mál, fjárlög 1950
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Hv. 6. landsk. sagði, að ég hefði verið að bera sakir á sig. Þetta er algerlega rangt, og ég get fullvissað hann um það, að það er hann, sem er að versna. Þessi hv. þm. var hér með tilraunir til að verja sinn flokk, þó að heldur tækist það erfiðlega, sem eðlilegt var. Hv. þm. er svo reiður af því, að ég upplýsti, hvernig flokkur hans hefði notað sína aðstöðu, þegar hann var í ríkisstj., og ekki hugsað um það, þótt fjárlög hækkuðu þá. — Það er hneykslanlegt, hvernig ríkið hefur rekið sérleyfisferðirnar norður. Þar eru vegir beztir og sérleyfishafar græddu mikla peninga. Ráðherrann hélt, að hægt væri að græða á þessu, og lagði sérleyfisferðirnar undir ríkið, en það fór á annan veg, því að minna varð um gróðann. Það var hneyksli að leggja þessar sérleyfisferðir undir ríkið og láta það borga með þeim. — Þá hefur hv. 6. landsk. blandað saman húsaleigunefnd og húsaleigulögunum. Ég hef ekki ásakað hæstv. fyrrv. ráðh. Alþfl. fyrir húsaleigulögin, heldur fyrir það að hækka grunnlaun þeirra manna, sem voru í húsaleigunefnd. Það kemur berlega í ljós, að hv. þm. veit ekki, um hvað hann er að tala. Hann ætti ekki að vera að belgja sig upp með alls konar vitleysu. — Þá var hv. þm. að segja, að ég ætti að taka það aftur, að ég hefði heyrt, að maður nokkur hefði úthlutað sjálfum sér 4 bilum, og ég veit, að hv. þm. hefur heyrt þetta líka. (HV: Hvað heitir þessi maður?) Það kemur ekki málinu við, en þetta er staðreynd. (HV: Hv. þm. þorir ekki að nefna manninn, af því að hann veit, að hann er að ljúga.) Hví er hv. 6. landsk. að segja þetta? Hann veit, að þetta stendur í þingskjölum. Hv. þm. ætti ekki að vera svona æstur. Ég hef aðeins borið hér fram staðreyndir, að Alþfl. hafi ekki notað sína aðstöðu til að spara, heldur þveröfugt, og væri hægt að nefna mýmörg dæmi um þetta. —Varðandi ummæli hv. þm. um áhrif gengislækkunarinnar á fjárlögin, gæti ég rekið það allt ofan í hann aftur, en gengislækkun er hér ekki á dagskrá, og læt ég hér staðar numið.