05.05.1950
Sameinað þing: 45. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (1123)

38. mál, fjárlög 1950

Gunnar Thoroddsen:

Í stjórnarsamningnum er gert ráð fyrir, að vissar fjárhæðir gangi til þessara bygginga, sem þarna er um rætt. Ég tel því ekki ástæðu til þess né möguleika, að ætla sérstaka fjárhæð á fjárl. í þessu skyni, og segi því nei.