11.05.1950
Sameinað þing: 48. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (1147)

38. mál, fjárlög 1950

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Út af fyrirspurn þess hv. þm., er síðast talaði, verð ég að játa, að mér er ekki kunnugt um það, hvernig þessu hefur verið varið, og ég næ líklega ekki núna í þá, sem hafa þau gögn, er geta veitt upplýsingar um þetta, en skal reyna að gera það við fyrsta tækifæri. Reglan um þetta atriði var tekin upp áður en ég kom í ráðuneytið, en ég hef ekki kynnt mér þetta, svo að ég þori ekki að fullyrða neitt um það, en mér þykir ólíklegt, að það sé gert. Ég skal því athuga þetta við fyrsta tækifæri.