13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)
164. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Viðvíkjandi því, sem hæstv. fjmrh. sagði um afkomuhorfur ríkisins í sambandi við þetta, þá er líka önnur afkoma, sem verður að athuga í þessu sambandi. Það er afkoma alþýðuheimila landsins. Ég skil ekki, hvernig alþýðuheimili eiga að komast af hér í Reykjavík, með þeirri dýrtíð sem er, með tekjur upp á 20 þús. kr. á ári. Og ég held, að þó að ríkið leggi eina millj. kr. í viðbót í sölur í sambandi við lækkun tekjuskatts á lágtekjum, þá standi ríkið undir því. Það hefur lagt það þungar byrðar á alþýðuna nú. Hins vegar standa fátækar fjölskyldur ekki undir þessu, sem af því opinbera hefur verið lagt á alþýðuheimilin nú. Ég held, að það megi ekki líta svo einhliða á tekjuþörf ríkissjóðs, að við gleymum að líta á þarfir alþýðuheimilanna, sem þarf að uppfylla, til þess að fólkið þar geti lifað. Og það hefur verið lagt svo þungt álag á alþýðu manna á þessu þingi, að ég held, að það ætti ekki að láta sig muna um þá litlu viðbót, sem þarna er farið fram á, viðkomandi lækkun tekjuskattsins af lágtekjum í brtt. okkar hv. þm. V-Ísf., þó að þarna mundu koma nokkur heimili undir, eins og hv. þm. V-Ísf. sýndi fram á. Vil ég því eindregið mæla með því, að þessi brtt. verði samþ.