13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)

165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hér er um að ræða breyt. á l. um skemmtanaskatt og þjóðleikhús. Eins og bent hefur verið á af öðrum, hafa frv. um þetta legið tvisvar áður fyrir þ. fyrir skömmu. Í bæði skiptin voru þau til athugunar í menntmn. þessarar hv. d., en eigi í fjhn. Ég vil nú beina því til hæstv. ráðh., hvort hann vilji eigi fallast á að breyta till. sinni svo, að málið fari til hv. menntmn., því að undanfarið hefur það verið þar til meðferðar.