15.12.1949
Neðri deild: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

41. mál, skipun læknishéraða

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Ég vil láta í ljós þakklæti til heilbr.- og félmn. fyrir góða afgreiðslu málsins. Ég vil einnig mæla með brtt. n. við 2. gr. Sakir þess, hve hagkvæmt er að koma fastri skipan á þetta mál um næstu áramót, væri æskilegt, að frv. gengi rösklega gegnum þingið og hlyti lagagildi. Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann greiði götu þess, svo að það verði afgr. fyrir hátíðar.