20.12.1949
Neðri deild: 15. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)

67. mál, skemmtanaskattur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson.):

Herra forseti. Þetta frv. er eitt af þeim, sem eru endurnýjun á fyrri l., og er nauðsynlegt að fá þessi l. endurnýjuð, til þess að skatturinn lækki ekki. Ég býst við, að almennt sé ætlað, að skemmtanaskattur megi sízt við því, að hann sé lækkaður. Hann fullnægir jafnvel eigi því, sem hann er ætlaður til. Vil ég því mælast til þess, að frv. fái greiðan gang í gegnum þessa hv. d., svo að takast megi að afgreiða málið fyrir jól.