24.12.1949
Efri deild: 18. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

67. mál, skemmtanaskattur

Páll Zóphóníasson:

Ég vil enn láta í ljós viðvíkjandi framlengingu á þessum gjöldum, að ég tel, að þurft hefði að áætla þau öll í sambandi við fjárhagsáætlun næsta árs. Eins og ég benti á á síðasta þingi, tel ég rangt að breyta oft sömu lögunum og mun því sitja hjá. Það á að taka öll þessi gjöld til athugunar við fjárhagsáætlun næsta árs, en ekki að framlengja þau hvert fyrir sig alveg án tillits tll þess, hvort þau geta staðið þegar þörf ríkissjóðs er athuguð hins vegar.