19.12.1949
Efri deild: 18. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (1596)
71. mál, almannatryggingar
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Nefndin hefur borið sig saman um það, hvort hitt frv. muni ná fram að ganga fyrir nýár, og telur litlar líkur til þess, en óskar, að þessu máli verði hraðað svo sem unnt er, svo að það nái fram að ganga núna fyrir jólin.