20.12.1949
Neðri deild: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)

76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég verð að láta í ljós undrun mína yfir meðferð þessa máls. Hér hafa komið fram till. um að framlengja þessi gjöld, og á það að vara aðeins til skamms tíma eða til bráðabirgða, eða til 1. febr. í till. hv. þm. V-Húnv. og til 1. marz í till. hv. þm. V-Ísf. Ég verð því að segja, að ég undrast stórlega, að þm. frá stjórnarflokkunum skuli koma fram með till. um að taka út þessa einstöku liði, því að ég fæ ekki séð, að það hafi mikið að segja, þó að þetta haldist enn þennan stutta tíma. Ég er því stórlega undrandi yfir þessari framkomu.