20.12.1949
Neðri deild: 19. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1658)

76. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram út af skrifl. brtt., að þeir menn, sem þar eiga sérstaklega hlut að máli, áttu tal við mig í dag um allan sinn hag og fóru eindregið þess á leit að, að einhverju yrði létt af þeim þungbæru sköttum, sem á þeim hvíldu. Ég tel þess vegna mjög réttlátt, að það verði athugað, eftir því sem föng standa til. En ég er á móti því, að slík till. verði samþ., að ekki meira athuguðu máli, en nú er.