17.05.1950
Sameinað þing: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1578 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

Þinglausnir

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér í nafni okkar þingmannanna allra að þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð. Jafnframt vil ég þakka honum fyrir góða og röggsamlega fundarstjórn og gott samstarf. Óska ég svo hæstv. forseta góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og vil ég vænta þess, að við hittumst heilir að hausti. — Ég vil biðja hv. þingmenn að taka undir þessi orð mín með því að standa upp. — [Þm. risu úr sætum.]