31.01.1950
Neðri deild: 36. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)

101. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Augljóst er, að það verður að afgreiða þetta mál í dag, svo að heimild sé til að inna af hendi nauðsynlegar greiðslur. Spurningin er aðeins, hvað heimildin á að gilda lengi. Ég álít hæfilegt, að hún yrði framlengd um einn mánuð aðeins, eða til 1. marz, og vil ég við þessa umræðu geta þess, að fram mun koma við 2. umr. brtt. í þá átt.