25.02.1950
Neðri deild: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

119. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Ég get eftir atvikum fallizt á það, að fresturinn sé styttur, þannig að framlengingin gildi einn mánuð, eins og segir í brtt. hv. þm. V-Húnv. Það kemur þá til Alþ. að framlengja þessi l. einu sinni enn þá, ef fjárl. verða ekki afgreidd fyrir 1. apríl.