30.03.1950
Neðri deild: 77. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (1892)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Ásgeir Ásgeirsson:

Fjhn. flytur þetta frv. samkvæmt beiðni fjmrh. samkvæmt þeirri reglu að flytja stjfrv. til þess að greiða fyrir því, að þau komist inn í þingið. Þetta er formsatriði til þess að gera þetta einfaldara, en segir ekkert til um fylgi nm. við frv. Hæstv. fjmrh. mun hafa framsögu um frv., en ég mun gera grein fyrir mínu atkv. síðar.