30.03.1950
Neðri deild: 77. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)
137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það var eitt atriði í ræðu hv. 3. landsk. (GÞG), sem ég sé ástæðu til að víkja að með nokkrum orðum. Mér skildist á honum, að honum kæmi nokkuð á óvart, að þetta frv. skyldi koma fram. Út af þessu skal ég rifja upp, að þegar gengislækkunarmálið var til meðferðar í fjhn., kom fram fsp. um það til ríkisstj., hvað hún hefði í huga viðvíkjandi söluskattinum, og fengum við þær upplýsingar í n., að til þess væri ætlazt af ríkisstj., að skatturinn yrði framlengdur, enda var gert ráð fyrir honum í tekjubálki fjárlaga. Nú var það svo, er fjhn. hafði til meðferðar gengislækkunarmálið, að hv. 3. landsk. átti þar þá sæti fyrir sinn flokk, og ætti þetta því alls ekki að koma honum á óvart.