21.03.1950
Neðri deild: 72. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)

120. mál, ónæmisaðgerðir

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég vildi aðeins leyfa mér að segja nokkur orð. Frv. þetta, sem nú er komið frá hv. Ed., er samið af landlækni og flutt skv. ósk heilbrmrn. Frv. hefur, eins og ég tók fram, gengið í gegnum hv. Ed., og vildi ég aðeins leyfa mér að óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn. Annað hef ég ekki að segja frekar að svo stöddu.