31.03.1950
Neðri deild: 80. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1265 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)

135. mál, dánarvottorð og dánarskýrslur

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki að bæta neinu við það, sem hv. frsm. sagði um þetta mál, en að því leyti sem ég hef kynnt mér það, veit ég, að full þörf er á nýjum l. um þessi efni, og landlæknir óskar eftir, að það nái fram að ganga. Ég vil því vona, að svo verði, annaðhvort ábreytt eða með breytingum, og vona, að það verði gert eins fljótt og auðið er.