07.12.1949
Efri deild: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (2025)
44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur
Flm. (Hermann Jónasson):
Ummæli hæstv. dómsmrh. gefa mér ekki tilefni til ýtarlegra umr. um þetta mál, en ég mun aðeins minnast á þau atriði, sem hann drap á. Það er vitanlega alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að það þarf breytinga við á meðferð opinberra mála í okkar landi, því að meðferðin á þeim er hér með öðrum hætti, en tíðkast víðast annars staðar. En ég veit ekki, hvort hæstv. ráðh. treystir sér til þess að svara því á þessu stigi málsins, hvort nokkrar líkur eru til þess, að þær breyt. verði gerðar á réttarfarsl., sem frv. það, sem hann ræðir um, gerir ráð fyrir. Það er vitað, að það kostar stórfé, og það er álítið, að ríkissjóður sé ekki mjög aflögufær nú, og ekki heldur líkur til þess, að hann verði það alveg á næstunni, svo að af þeim ástæðum hefur verið gert ráð fyrir, að mér hefur heyrzt, að frv. um breyt. á meðferð opinberra mála yrði að biða. Kostnaðurinn við framkvæmd þeirra laga yrði, eins og ég sagði áðan, vitanlega gífurlega mikill.
Viðvíkjandi greinargerðinni, sem gert er ráð fyrir í síðari hluta 3. gr., er það að segja, að ég hef vitanlega ekkert á móti því, að n. athugi og geri samanburð á fleiri vörutegundum en þar er tekið fram, en þetta lá svona fyrst fyrir. Ég geri ekki ráð fyrir því, þó að fiskur sé orðinn talsvert dýrari hér en erlendis, að við flytjum hann inn fyrst um sinn, og svo mun líka vera um landbúnaðarvörur, en ég sé ekki ástæðu til að hafa á móti því, að n. athugi þetta, ef henni þykir ástæða til.