21.04.1950
Neðri deild: 86. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Frsm. (Jónas Rafnar):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta frv., sem hér liggur fyrir til umr., og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. 1. flm. frv., hæstv. landbrh., gerði við 1. umr. ýtarlega grein fyrir frv. og tilgangi þess, svo að óþarft er, að frekari grg. fylgi áliti n., úr því að hún mælir með frv. athugasemdalaust.