21.04.1950
Neðri deild: 86. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Það er um fundarsköp. Ég sé, að það liggur fyrir brtt. við þetta frv. frá hv. 8. landsk. þm. (StJSt). Hann er ekki mættur hér, og er nú kannske tæplega viðkunnanlegt að afgreiða málið án þess, að hann fái að gera grein fyrir sínum brtt.