25.04.1950
Neðri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Ég tel það vera alveg sjálfsagða skyldu verðgæzlumanns að sjá um þetta atriði, sem hér um ræðir. En þetta er ekki nema eitt af fjölmörgum verkefnum hans, og tel ég ástæðulaust að nefna aðeins eitt þeirra í lögunum og segi því nei.