09.12.1949
Efri deild: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (219)

54. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég verð að segja, að ég hef ekki nákvæmar tölur varðandi þetta, en við fljótlega áætlun hefur svo virzt, að ekki þyrfti að kvíða því, að þetta gjald stæðist ekki. Um síðara atriðið skal ég ekkert segja, það fellur í annars hlut. Þegar fjárlagfrv. var samið, var augljóst, að halda yrði við þessum tekjustofni. Ef breytinga er þörf, er það málefni, sem annar mun flytja en ég. Hverju þetta gjald hefur numið í ár, er ekki hægt að segja nákvæmlega, því að áætla verður fyrir þann tíma, sem eftir er af árinu. Ég ætla, að ég muni geta upplýst hv. fjhn. um, hvað næst verður komizt í þessu efni.