09.05.1950
Neðri deild: 98. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (2263)
110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :
Þetta mál hefur eigi legið fyrir landbn., og get ég því eigi talað fyrir hönd hennar, og sízt af öllu mæli ég með samþykkt heimildarinnar. En eftir því sem mér skildist, er hér um meira að ræða en makaskipti, þó að þarna sé um kaup ríkisins að ræða, því að þurfa mun að gefa allmikið fé á milli. Það má vera, að hagkvæmt yrði að ýmsu leyti að koma á skiptum. En ég tel rétt, að málið færi fyrst gegnum landbrn. Venjan er sú, að komið hafa álitsgerðir frá ráðuneytinu um sölu þeirra jarða, sem fallizt hefur verið á á Alþ., að seldar yrðu. Vildi ég leggja til, að þetta mál færi sömu leið, þannig að upplýsingar og tillögur kæmu frá hæstv. ríkisstj. Hér er eigi um makaskipti að ræða, heldur hrein og bein kaup. Get ég ekki mælt með þessu f. h. landbn. og eigi borið fram álít hennar, en vildi segja þetta frá mér sjálfum.