13.05.1950
Neðri deild: 100. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)

110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég er á móti þessu frv., sem hér liggur fyrir, um sölu opinberra jarða. Hins vegar þar sem hér í brtt. er um makaskipti að ræða á jörðum, skal ég ekki setja mig upp á móti því, að þessi brtt. komist inn í frv., en greiði atkv. á móti frv. í heild, þó að brtt. verði samþ., og greiði því ekki atkv. um brtt.