09.12.1949
Efri deild: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (246)

55. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil benda n. á, að ég held, að síðan þessi l. voru sett sé búið að setja önnur l. um breyt. á álagningu á tóbaki. Það væri viðkunnanlegra að færa þetta saman, en að framlengja þetta fyrst. Það er þægilegra að hafa þetta á sama stað, svo að ekki þurfi að leita á mörgum stöðum eins og í fyrra, þegar breyt. á benzínskatti var að finna á þrem stöðum frá sama þingi.