22.11.1949
Neðri deild: 3. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (2816)
3. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Út af þessu frv. vildi ég segja það, að þegar sá skattur var ákveðinn, sem hér um ræðir, þá var hann einn liður í víðtækum ráðstöfunum, sem í heild miðuðu að því að gera ríkissjóði fært að standa undir niðurgreiðslum á matvörum, útgjöldum vegna fiskábyrgðar og ýmsum ráðstöfunum til öflunar gjaldeyris fyrir því fjölmarga, sem þjóðin má ekki án vera.
Það er rétt, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að hann og hans flokksmenn lögðust á móti því, að þessar leiðir væru farnar til tekjuöflunar, en þeir eru yfirleitt mótfallnir allri tekjuöflun. En þegar lagt var til að leggja þennan háa skatt á heimilisvélar, var það samkvæmt tillögum margmennrar ráðgjafarnefndar, er finna skyldi gjaldeyrisstofna til að standa undir nauðsynlegum útgjöldum.
Ég vil ekki segja, að hér sé um svo réttlátan skatt að ræða; því mun farið sem oft er um ýmsar skattaálögur. En þeir, sem lögðu til að leggja þennan skatt á heimilisvélar, munu hafa haft hliðsjón af því, að þær höfðu undanfarið verið seldar við mjög háu verði svona manna á milli, og uppi voru raddir um, að ef þær yrðu fluttar inn frá því landi, þar sem þær voru ódýrastar, þyrftu þær ekki, enda þótt skatturinn kæmi til, að verða dýrari en gangverð hafði þá verið á þeim.
Nú skal ég ekki fullyrða um neitt réttmæti í þessum efnum, en ég fyrir mitt leyti hef sannfærzt um það, að þessi skattur kæmi mjög illa niður, jafnvel meðan gengi dollarans var óbreytt, en það breytist alveg viðhorfið, þegar dollarinn hækkar, eins og kunnugt er, úr kr. 6.50 í kr. 9.30. Þá er það sýnilegt, að þessi tæki verða ákaflega dýr og mikils til of dýr, ef svona hár innflutningstollur ætti að haldast á þeim, og væru það út af fyrir sig nægileg rök fyrir því, að því væri ekki haldið til streitu hér eftir að hafa hann svo háan sem lög nú ákveða á þessum heimilisvélum. Hitt er svo annað mál, að það mun koma í ljós síðar, að það, sem gert var ráð fyrir, þegar dýrtíðarlögin voru samin, að flutt yrði inn og gæfi ríkissjóði miklar tekjur, að sú tekjuvon hefur ekki orðið neitt því lík, sem áætlað var, og það gildir líka um heimilisvélar, blátt áfram af þeirri ástæðu, að innflutningsyfirvöldunum hefur ekki virzt vera gjaldeyrisforði fyrir hendi, sem leyfði, að mikið væri flutt inn af þeim vélum. Tel ég þó, að slíkt væri nauðsynlegt, að unnt væri að flytja inn mikið af þeim, en af augljósum ástæðum hefur það ekki reynzt eins kleift og menn gerðu sér vonir um, þegar l. voru sett. — Ég vil þess vegna fyrir mitt leyti taka undir þá till. flm., að hér sé gerð nokkur breyt. á, og kemur það að sjálfsögðu fram í fjhn. á sínum tíma, hvað langt sú n. vill ganga til þess að mæta tillögum þeim, sem fyrir liggja í þessu frv., en ég ætla, að það muni allir sansast á það nú orðið, með því háa gengi, sem orðið er á Bandaríkjadollarnum, en frá Bandaríkjunum eru þessi tæki mest og bezt keypt, og má heita, að rétt muni vera að létta að miklu leyti af þessum tækjum, þeim tollum, sem menn töldu sig neydda til að lögleiða á síðasta þingi.