24.02.1950
Neðri deild: 51. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í C-deild Alþingistíðinda. (2851)

26. mál, utanríkisráðuneytið og fulltrúar þess erlendis

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Snemma á þessu þingi fluttum við hv. 1. þm. Rang. frv. til l. um breyt. á l. um fulltrúa Íslands erlendis. Málinu var síðan vísað til 2. umr. og allshn. þessarar hv. d. Það er nú orðið nokkuð um liðið síðan þetta var, þar sem þetta frv. var 26. mál þingsins. Nú vildi ég fá upplýsingar frá n., hvort ekki megi vænta úr þessu afgreiðslu á málinu af hennar hálfu.