09.05.1950
Neðri deild: 98. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í C-deild Alþingistíðinda. (2899)

63. mál, fjárhagsráð

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Enda þótt ég telji þessa till. gallaða og of takmarkaða og að ganga beri lengra í þessu efni, að athuga um afnám fjárfestingarleyfa til byggingarframkvæmda á smærri íbúðum almennt og ekki aðeins gagnvart þeim, sem byggja fyrir sjálfa sig, þá ætla ég samt sem áður, þó að ég telji nokkra annmarka á till., að vera með henni og segi já.