23.03.1950
Neðri deild: 73. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í C-deild Alþingistíðinda. (2990)
85. mál, eyðing refa og minka
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Mér virðist, að það hafi ekki komið greinilega í ljós, hversu mikið verðmæti um er að ræða í sambandi við þau minkaskinn, sem flutt hafa verið út. Þeir, sem mest mæla með að halda minkaeldi áfram, hafa talað um þá þýðingu, sem útflutningur skinnanna hefði fyrir landið, en hafa ekki minnzt á það, hvort þetta væri í rauninni nokkurt tap fyrir hvern einstakling. Hér í fórum mínum hef ég nokkrar tölur um minkainnleggið frá síðustu árum. Á síðasta ári komst verðmæti minkaskinnanna á 2. millj. kr. Næstu 8 ár á undan nemur verðmæti skinnanna 1 millj. kr. á ári. — Nú er að gæta þess, að pelsar muni hækka í verði vegna gengislækkunarinnar, en þó er einnig aðgætandi, að kaupgeta manna minkar. — Þá hlýtur og öll fóðrun dýranna að verða dýrari, en áður. Þegar alls þessa er gætt, virðist ekki vera mikil eftirsjá í því, þótt þessum dýrum verði útrýmt. Auk þess verður að taka hér til greina alla þá eyðileggingu, sem villiminkarnir valda. Einmitt vegna þessa verðum við að útrýma öllum minkum, bæði úr búrum og annars staðar. Margir eru sammála um það, að erfitt muni vera að útbúa búrin þannig, að öruggt megi teljast, að minkarnir sleppi ekki út.
Auðvitað mun þetta valda ríkinu nokkrum útgjöldum, en það verður þó lítilfjörlegt í samanburði við allt það tjón, sem minkarnir valda. Það má taka til dæmis það tjón, sem minkurinn veldur í Breiðafjarðareyjum. Þar fer nú varp mjög þverrandi, og það er ekki búið að, sjá fyrir endann á öllum þeim skaða. Og þetta verður þó að telja engu síður mikilvæg verðmæti en útflutning minkaskinna. Allir eru nú sammála um það, að útrýma þurfi villiminki. En hér er deilt um það, hvort banna eigi allt minkaeldi í landinu eða ekki. Nú er það vitað mál, að ákaflega torvelt er að sjá svo um, að aliminkar sleppi ekki úr búrum, og þegar þess er svo gætt á hinn bóginn, hversu veigalítil atvinnugrein þetta er, þá ætti hv. þingdeild að vera það fullljóst, að hér verður að útrýma öllum minkum í landinu og því ekki þörf að fjölyrða um það.