18.04.1950
Efri deild: 90. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í C-deild Alþingistíðinda. (3005)

85. mál, eyðing refa og minka

Forseti (BSt) :

Hæstv. fjmrh. hefur óskað þess, að máli þessu verði frestað, og vil ég mælast til, að n. afli sér sem fyllstra upplýsinga um málið. Í öðru lagi er rétt að minnast þess, að sá, sem kosinn var framsögumaður í máli þessu af nefndarinnar hálfu, er ekki lengur á þingi, og því væri æskilegt, að hv. nefnd kysi sér framsögumann. Er umræðum því frestað og málíð tekið út af dagskrá.