03.03.1950
Neðri deild: 59. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)

122. mál, verkstjóranámskeið

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Ég kveð mér eingöngu hljóðs til þess að óska þess, að þetta mál verði nú tekið út af dagskrá. Iðnn. fór yfir frv., þegar það var sent henni, og kom sér saman um að flytja það óbreytt, en ýmsar athugasemdir komu fram hjá nm. um að breyta orðalagi ýmissa greina frv., og á n. eftir að athuga þetta betur, og óska ég því sem einn af nm. í iðnn., að afgreiðslu málsins verði nú frestað.