17.03.1950
Neðri deild: 69. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (3091)

131. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hafði hugsað mér — eins og hv. þm. Borgf. — að bera fram brtt. við þetta frv. Ég vil því taka undir með honum og óska þess, að málinu verði ekki flýtt svo, að okkur gefist ekki kostur á að koma með brtt., a. m. k. við 3. umr. Hygg ég, að það þurfi ekki að tefja málið að nokkru verulegu leyti.