20.03.1950
Neðri deild: 71. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (3095)

131. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Pétur Ottesen:

Ég vil aðeins skjóta því til hæstv. forseta, hvort hann vilji ekki doka við með að taka þetta mál til umr., þar til form. fjhn. verður hér viðstaddur, vegna þess að n. mun hafa athugað frv. á ný ásamt brtt., sem ég flutti við það.