10.01.1950
Neðri deild: 25. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Ég vil ekki nú heimila ábyrgð lengur, en út vetrarvertíð, og þá til vara eftir 1. marz til 15. maí. Hins vegar mun ég beita mér fyrir útflutningsábyrgð á sumar- og haustvertið, ef mót von minni verður þá ekki búið að koma í framkvæmd öðrum úrræðum í staðinn, sem viðunandi eru fyrir útveginn.