10.01.1950
Neðri deild: 25. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Ég álít það vera óforsvaranlegt, að bætt sé inn í frv. nýjum útgjaldaliðum, án þess að gert sé ráð fyrir tekjum á móti, og þar sem hér er ekki gert ráð fyrir tekjum til þess að standast þau milljónaútgjöld, sem lögð yrðu á ríkissjóð með þessari breyt., ef samþ. yrði, segi ég nei.