18.04.1950
Efri deild: 90. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (3229)
60. mál, notendasímar í sveitum
Forseti (BSt):
Út af tilmælum hv. 11. landsk. (ÞÞ) um að fresta máli þessu,, þá er það að segja, að það hefur oft verið gert. Þetta er í þriðja sinn, sem málið er tekið fyrir, og auk þess hafa hv. nm. haft nægan tíma til að athuga málið, enda er nál. dags. 1. marz. Ráðherrum hefur verið borin dagskrá, og þeir hafa fengið næg tækifæri til að láta álit sitt í ljós. En samt, úr því að þessi tilmæli hafa komið fram frá nm., sem ekki var viðstaddur, þegar málið var afgreitt í n., þá skal nú orðið við þessum tilmælum, og geri ég þá ráð fyrir, að form. fjhn. boði fljótlega fund og þess sé þá að vænta, að nm. verði reiðubúnir að taka afstöðu til málsins.