06.12.1949
Sameinað þing: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (3451)
48. mál, vatnsflóð og skriðuhlaup í Neskaupstað
Flm. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Það þarf ekki langa ræðu til að skýra þessa till., sem ég ásamt þm. S-M. flyt hér á þskj. 64. Grg., sem fylgir till., skýrir það efni, sem hér er um að ræða, í aðalatriðum. Þessi till. er flutt samkvæmt beiðni bæjarstjórnar Neskaupstaðar vegna þeirra atburða, sem þar gerðust og raktir hafa verið í blöðum og útvarpi. Ég vil hins vegar segja það við þessa fyrri umr., að ég vænti þess, að sú n., sem fær þetta mál til athugunar, taki fullt tillit til þess, að þeir atburðir, sem þarna gerðust og farið er fram á nokkurn stuðning vegna, eru svo sérstæðir, að það verður varla hjá því komizt, að þjóðarheildin hlaupi undir bagga, þegar þannig vill til eins og þar hefur orðið. Atburðir eins og þessir eru svipaðir eins og þegar um jarðskjálftatjón hefur orðið að ræða eða önnur meiri háttar tjón af náttúruhamförum, en dæmi eru til þess, að ríkissjóður hefur hlaupið undir bagga og veitt nokkrar tjónbætur undir þeim kringumstæðum. Í þessu tilfelli hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, að dómkvödd n. taki að sér að meta tjón það, sem bærinn og einstaklingar hafa orðið fyrir. Þetta mat n. mun liggja fyrir bráðlega, en ekki er hægt, fyrr en það liggur fyrir, að kippa öllu í lag, sem þarna hefur farið úr lagi. En í þessari till. er farið fram á, að veitt verði nokkur bráðabirgðaaðstoð svo að hægt sé að efna til framkvæmda nú þegar. — Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða um þetta meira, en óska, að málinu sé vísað til fjvn. til umsagnar.