28.11.1949
Sameinað þing: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3469)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Haraldur Guðmundsson:

Hv. 8. þm. Reykv. (RÞ) spurði, hvort við Alþýðuflokksmennirnir, sem erum meðflm. þessarar till., flyttum hana af hálfu Alþfl. og töluðum í hans nafni. Ég get svarað því strax, að till. er flutt af hálfu Alþfl., og Alþfl. er með því í heild, að till. verði samþ. Ég vildi bara, að afstaða flokks hv. 8. þm. Reykv. væri jafnglögg, en vil jafnframt taka það fram, eftir að hafa heyrt ræðu hv. þm. Str., að ég hef von um, að breyting hafi þar orðið til batnaðar. Það urðu mér hins vegar vonbrigði, að hv. 1. flm. hefur ekki eins eindreginn stuðning frá hv. þm. Borgf. og hv. þm. Barð. og ég hafði vænzt.