14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (3479)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég tel enga ástæðu hafa verið til þess fyrir hv. 3. landsk. að halda þessa síðari ræðu sína og vera með hótanir í garð n., því að eins og ég sýndi fram á áðan, er ekki hægt að álasa mér sem form. eða n. í heild fyrir meðferð málsins.