04.01.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (3527)

7. mál, hraðfrystihús og fiskiðjuver í Flatey

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil ekki mæla gegn því, að þessi till. verði samþ., þar sem ég geri ráð fyrir, að hennar sé full þörf og þeirrar ábyrgðar, er hún felur í sér. En ég vildi aðeins segja, um leið og till. kemur til atkvæða, að ég geri ráð fyrir því, að á ýmsum stöðum, þar sem líkt stendur á og hraðfrystihús eru í byggingu, en fé skortir til þess að fullgera þau, þá verði farin svipuð leið og hér hefur verið gert, og vænti ég þess þá, að þeim umleitunum, sem kunna að berast, verði tekið með sams konar velvilja og þessu máli hefur nú verið tekið hér.