29.03.1950
Sameinað þing: 37. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í D-deild Alþingistíðinda. (3659)

86. mál, réttarstaða og atvinnuskilyrði kvenna

Rannveig Þorsteinsdóttir:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka allshn. afgreiðslu þessa máls og get vel fallizt á þá breytingu, sem tillaga er um að gerð verði, því að ég treysti vel hæstv. núverandi ríkisstj. og hæstv. félmrh., sem þetta mál mun fá til meðferðar, til að láta gera þá athugun, sem mín upphaflega till. gerði ráð fyrir að falin yrði sérstakri nefnd.