14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í D-deild Alþingistíðinda. (3802)
62. mál, kaup sjómanna síldveiðiflotans
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Ég tel nauðsynlegt, að sjóveð þau, sem ógreidd eru frá síðustu vertíð, verði goldin, og spurði ég hæstv. ráðh. um það, hverjar ráðstafanir hann hefði hugsað sér að gera í þessu sambandi í samræmi við það, sem áður hefur tíðkazt, þegar vertíð hefur brugðizt. Hæstv. ráðh. hefur ekki sagt neitt, sem af má draga, hvaða ráðstafanir hann hugsi sér að gera, en í Morgunblaðinu er sagt frá því, að Útvegsmannafélag Reykjavíkur hafi æ ofan í æ óskað eftir því, að ráðstafanir yrðu nú þegar gerðar í málinu. Það er einnig krafa L. Í. Ú., að bætt verði úr þessu, og það er æskilegt, að það komi skýrar í ljós, hve mikið ógreitt er af sjóveðunum. Í fyrra kvöld afgreiddi Landssamband íslenzkra útvegsmanna till. um að skora á Alþ. að ráða fram úr þessu máli í sambandi við frv. það, sem prentað er á þskj. 63 og hæstv. þm. Borgf. talaði um áðan, en hæstv. sjútvmrh. hefur einmitt mælzt til, að því máli yrði hraðað. Væri því rétt, þinglega séð, að afgreiðsla þessa máls og þess frv. yrði sameinuð.