13.04.1950
Sameinað þing: 38. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í D-deild Alþingistíðinda. (3907)

126. mál, útflutningur veiðiskipa

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson) :

Út af þessari fyrirspurn hv. þm. Ísaf. vil ég taka það fram, sem hann gat um, að hæstv. atvmrh. er sem stendur erlendis, en mun koma heim eftir örfáa daga, og ég er alls ekki við því búinn að svara þessari fyrirspurn nú á þessari stundu á þann hátt, sem hv. þm. lagði hana fyrir. Ég tel eðlilegt, að ef þetta mál kemur til meðferðar þingsins, þá væri beðið með það þangað til hæstv. atvmrh. kemur heim.